Ég hef átt mér margar hetjur gegnum árin. Þær hafa mótað mig á marga vegu og verið mér fyrirmyndir á hinum ýmsu sviðum. Meðal þeirra eru:
Eiður Smári Guðjohnsen, afspyrnugóður knattspyrnari
Karl Logan, gítarhetja
Sæti hundurinn í As Good as It Gets
Hver þessara einstaklinga hefur sýnt mér nýjar hliðar á lífinu og komið mér lengra á þróunarbrautinni. Seinustu árin hef ég trúað því að ég væri svo að segja fullþroskaður, það ætti aðeins eftir að slípa burt nokkrar grófar brúnir og þá væri ég tilbúinn.
En svo kynntist ég FBI Special Agent Dale Cooper.
Hann er nýja hetjan mín. Þess vegna hef ég tileinkað honum þetta blogg. Tilgangur þess er að vera meira eins og Special Agent Dale Cooper. Svo einfalt er það.
sunnudagur, 2. september 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli